1. Til prófs
• Lesa vel bls. 9-20
• Fara vel í ,,Veistu svarið” á bls. 14, 17 og 20
• Skoða glósurnar
• Orðaforði
– frumeind - föst efni
– sameind - vökvar
– frumefni - lofttegundir
– efnasamband - rúmmál (lítrar og rúmmetrar)
– efnablanda - massi
– Efnatákn - þyngd
2. Frumeindir
• Frumeindir eru minnstu byggingareiningar
allra efna
– Þær eru svo litlar að í einum títiprjónshaus eru
100.000 milljónir frumeinda
– Þekkt eru rúmlega 100 frumefni, 90 þeirra finnast í
náttúrunni. Hinar hafa verið búnar til á
tilraunastofu
3. Sameindir
• Þegar tvær eða fleiri frumeindir bindast saman
mynda þær sameind
• Sameindir í vökva eru á stöðugri hreyfingu
• Sameindir í lofti hreyfast enn hraðar
4. Frumefni
• Frumefni eru úr einni tegund frumeinda
= O₂ = Hér eru tvær súrefnis-
frumeindir tengdar saman
5. Efnasamband
• Efnasamband eru sameindir gerða út tveimur
eða fleiri tegundum frumeinda
= H₂O = Tvö vetni og eitt súrefni
tengd saman
6. Efnatákn
• Hvert frumefni er táknað með bókstöfum,
einn stórstafur ( O= súrefni) eða einn stór
stafur og einn lítill stafur (Au = gull)
• Talan aftan við táknið segir til um fjölda
frumeinda í viðeigandi sameind
H₂O = tvær vetnisfrumeindir og ein
súrefnisfrumeind
9. Efnablanda
• Andrúmsloftið er efnablanda
• Í því finnum við bæði frumefni og
efnasambönd. Efnin eru ekki tengd saman og
því köllum við þetta efnablöndu.
• Í Andrúmsloftinu eru meðal annars…
– Nitur (N₂) Koltvíoxíð (C O₂)
– Súrefni (O₂) Vatn (H₂O)
– Argon (Ar)
13. Hópverkefni - Bls. 13
Efni í umhverfinu
Frumefni Efnasambönd Efnablöndur
Gull - Sjór - Vatn – Kvikasilfur - Kranavatn – Salt – Koltvísýringur- Flúor - Mjólk
14. Hópverkefni - Bls. 13
Efni í umhverfinu
Frumefni Efnasambönd Efnablöndur
Gull Vatn Kranavatn
Kvikasilfur Salt Sjór
Flúor Koltvísýringur Mjólk
15. Veistu svarið bls. 14
1. Frumeind er minnsta byggingareining allra efna, ein stök ,,kúla” en
sameind er tvær eða fleiri ,,kúlur” tengdar saman.
2. Tvær
3. Frumeind
4. Nei, það er ekki hægt að búa til frumefni.
5. Vatn
6. C = kolefni og O = súrefni
7. Súrefni er frumefni
8. Efnasamband
9. Efnablanda
10. Efnablanda
11. A) 2 B) 1 C) 3
16. Rúmmál
• Rúmmál er mælikvarði á efnismagn, oft mælt í
lítrum
• Til að búa til aðrar hentugar mælieiningar notum
við forskeytin:
kíló
hektó
deka
desí
sentí
millí KUNNA!
kíló- hektó- deka- lítri desí- sentí- millí-
17. Rúmmetrar
• Rúmmál fastra efna er oft mælt í rúmmetrum
• Til að finna rúmmál kassalaga hluta þarf að
mæla lengd, breidd og hæð.
• Rúmmál = lengd ∙ breidd ∙ hæð
? Hvert er rúmmál kassa sem hefur
kantlengdirnar 2cm, 4cm og 5cm?
19. Veistu svarið bls. 17
1. Með mæliglasi
2. 3 ∙ 3 ∙ 3 = 27 cm³
2 ∙ 4 ∙ 6 = 48 cm³
3. 16 ml = 16 cm³
4. 88 ml – 50 ml = 38 ml = 38 cm³
5. 1 cm³ = 1 ml
6. 350 cm³ = 7 cm ∙ 5 cm ∙ 10 cm
20. Massi
• Massi hlutar er mælikvarði á efnismagn hans.
Oft mældur í grömmum.
• Léttir hlutir eru oft mældir í millígrömmum
þungir í kílógrömmum og mjög þungir hlutir í
tonnum (1000 kg)
21. • Efnismagnið ræðst af fjölda og tegundum
frumeinda í hlutum.
• Massi hlutar er alls staðar sá sami ef
efnismagn hans breytist ekki, sama hvort við
hitum eða kælum hlutinn eða erum með hann
niður við fjöru eða upp á Everest fjalli.
22. Kertið
• Kveikt er á litlu kerti og það lokað inni í stórum
loftþéttum glerkassa. Þið vegið kassann með
kertinu og fáið út að heildarmassinn er
nákvæmlega 5 kíló. Þegar kertið er brunnið
upp látið þið kassann aftur á vogina.
• Hver haldið þið að heildarmassinn sé?
• Af hverju haldið þið það?
23. Þyngd
• Þyngd og massi er ekki sami hluturinn.
• Massi er efnismagn hlutar
• Þyngd hlutar er sá þyngdarkraftur sem verkar
á hann frá hlutum í nágrenninu
• Þyngd er mæld í krafteiningu sem kallast
njúton (N = Newton)
• Án þyngdarkrafts héldist lofthjúpurinn ekki við
jörðina.