2. Fuglar Til eru 6 flokkar af fuglum þeir eru Landfuglar Máffuglar Sjófuglar Spörfuglar Vaðfuglar Vatnafuglar Landfugl Máffugl Sjófugl Spörfugl Vaðfugl Vatnafugl
3. Landfuglar Landfuglar eru: Bjargdúfa Brandugla Fálki Haförn Rjúpa Smyrill Þetta er ósamstæður flokkur Lítið um landfugla eða skógarfugla hér á landi. Ástæðurnar eru skógleysi og einangrun landsins Kyn þessara fugla eru svipuð útlits en kvenfuglinn nokkru stærri og yfirleitt er auðvelt að kyngreina rjúpur
5. Máffuglar Þeir teljast til strandfugla Máffuglar eru : Hettumáfur Hvítmáfur Kjói Kría Rita Sílamáfur Silfurmáfur Skúmur Stormmáfur Svartbakur Þetta eru dýraætur sem lifa aðallega á sjávarfangi, en einnig á skordýrum, úrgangi, fuglsungum, eggjum og fleiru. Flestir eru með sterklegan gogg, sem er krókboginn í endann Þeir hafa sundfit milli tánna
6. Máfar, kjóar og þernur verpa yfirleitt í byggðum Máfum er oft skipt í tvo hópa til hægðarauka, stóra máfa (svartbakur, hvítmáfur, sílamáfur o.fl.) og litla (t.d. hettumáfur, rita og stormmáfur). Kynin eru eins að útliti, en karlfuglinn er oftast ívið stærri Ungar þeirra eru bráðgerir
7. Sjófuglar Þeir ala allan sinn aldur á sjó nema þegar þeir koma á land til að verpa Sjófuglar eru: Álka Dílaskarfur Fýll Haftyrðill Langvía Lundi Sjósvala Skrofa Stormsvala Stuttnefja Súla Teista Toppskarfur Sjófuglar sína tryggð við maka sinn Þeir afla fæðu sinnar úr sjó og eru fiskiætur sem kafa eftir æti
8. Þeir verpa við sjó og flestir verpa einu eggi Ungar þeirra allra eru ósjálfbjarga og dvelja oft lengi í hreiðrinu. Kynjamunur sjófugla er lítill, það er helst einhver stærðarmunur sem greinir kynin að.
9. Spörfuglar Spörfuglar eru mjög mismunandi að stærð, en þó flestir smávaxnir. Músarrindill og auðnutittlingur eru minnstir íslenskra fugla, en hrafninn stærstur Spörfuglar eru: Auðnutittlingur Gráspör Gráþröstur Hrafn Maríuerla Músarrindill Skógarþröstur Snjótittlingur Stari Steindepill Svartþröstur Þúfutittlingur Spörfuglar eru langstærsti ættbálkur fugla. Það eru þó aðeins níu tegundir spörfugla sem verpa hér í einhverjum mæli. Ástæða er einangrun landsins, skógleysi og vætusöm veðrátta
10. Spörfuglar verpa í vönduð hreiður og ungarnir eru ósjálfbjarga, yfirgefa hreiðrið þegar þeir eru orðnir eða að verða fleygir Fótur spörfugla er svonefndur setfótur, en goggurinn er aðlagaður að fæðunni
11. Vaðfuglar Einkenni margra vaðfugla eru langur goggur, langir fætur og langur háls. Vaðfuglar eru: Heiðlóa Hrossagaukur Jaðrakan Lóuþræll Óðinshani Rauðbrystingur Sanderla Sandlóa Sendlingur Spói Stelkur Tildra Tjaldur Þórshani Þeir eru dýraætur og er langur goggurinn hentugur til að grafa eftir æti í leirum, tjarnarbotnum og jarðvegi Sumir fuglarnir í þessum flokki hafa samt fremur stuttan gogg og fætur eins og sandlóa og heiðlóa.
12. Vaðfuglar helga sér óðul og verpa pörin stök Kynjamunur er lítill hjá vaðfuglum, karlfuglinn er þó oft ívið skrautlegri og kvenfuglinn aðeins stærri.
13. Vatnafuglar eru: Álft Blesgæs Duggönd Flórgoði Gargönd Grafönd Grágæs Gulönd Hávella Heiðagæs Helsingi Himbrimi Hrafnsönd Húsönd Lómur Margæs Rauðhöfðaönd Skeiðönd Skúfönd Stokkönd Straumönd Toppönd Urtönd Æðarfugl Vatnafuglar Sumar tegundir í þessum flokki eru grasbítar en annarra er úr dýraríkinu Vatnafuglar eru sérhæfðir að lifi á vatni. Þeir hafa sundfit milli tánna og goggur margra er flatur með hyrnistönnum, sem auðveldar þeim að sía fæðu úr vatni.