Ákvörðunartré Háskólans í Reykjavík fyrir birtingu fræðigreina í opnum aðgangi
1. Greinin þín birtist í opnu eða hefðbundnu tímariti sem getur verið í prentuðu formi eða/og á Internetinu.
Rafræn útgáfa af greininni birtist í opnum aðgangi.
Óháð því hvar greinin birtist skilar þú rafrænu eintaki til Bókasafns- og upplýsingaþjónustu HR
til birtingar í varðveislusafni HR.
MIðað er við útgáfudag með að hámarki 12 mánaða birtingartöf.
Þú merkir eintakið, sem fer til bókasafnsins,
með höfundaréttarmerkingu (helst CC-BY) ef útgefandi samþykkir.
Ef þú ert akademískur starfsmaður HR og ert að fara að birta fræðigrein
í nafni skólans (e. RU affilated), einn eða með öðrum,
skaltu leitast við að birta hana í opnum aðgangi.
Þú getur ákveðið
að birta í tímariti í
opnum aðgangi án
kostnaðar
Þú hefur þá val um:
- Að birta greinina í opnu tímariti
- Að birta greinina í opnum
aðgangi í rafrænni útgáfu
hefðbundins tímarits sem býður
upp á þann möguleika
- Að þú birtir greinina í opnu
varðveislusafni jafnhliða útgáfu í
hefðbundnu tímariti
Þú getur ákveðið
að greiða kostnaðinn við
birtingu í opnum aðgangi
Þú getur ákveðið
að birta í hefðbundnu
tímariti ef útgefandi heimilar
birtingu í opnu varðveislusafni,
án kostnaðar, strax eða með
allt að 12 mánaða birtingartöf
Þú kynnir þér reglur útgefanda
varðandi hvaða handrit þú mátt birta í
varðveislusafni, en það geta verið:
1. Óritrýnt handrit (e. pre-print)
2. Ritrýnt handrit (e. post-print)
3. Útgefin grein sem .pdf
(e. published-version)
Ákvörðunartré Háskólans í Reykjavík
fyrir birtingu fræðigreina í opnum aðgangi
HR hvetur þig til að setja einnig eintak af greininni í alþjóðlegt faggreinabundið opið varðveislusafn og að setja
vísun í allt efni sem þú gefur út: t.d. frá vefsvæði þínu hjá HR, á persónulegri heimasíðu þinni, samfélagssíðum
[td. LinkedIn, Twitter, Google+, Facebook, Academia.edu, Google Scholar]
Þetta ákvörðunartré er hannað af Sigurbjörgu Jóhannesdóttur, 25. mars 2014, og gefið út af Háskólanum í
Reykjavík með CC0 almenningsleyfinu sem þýðir að það er í eigu almennings. Það má því hver sem er
endurnýta það að hluta til eða alveg, breyta og dreifa og gera að sínu.